Örstuttar geisladiska umfjallanir

Ég er búinn að kaupa mér fullt af diskum í sumar og ég ætla að gefa ummfjallanir.

Interpol - Turn On the Brigth Ligths: Frumburður Interpol og mjög góður diskur. Þarna er m.a uppáhalds Interpol lagið mitt NYC sem er svo ógeðslega katsý lag þrátt fyrir að vera rólegt og þungt. Lögin á diskum eru samt ekki öll svoleiðs(jú kanski pínu þung) en þau eru öll besta týpíska Interpol lag sem þú getur ímyndað  þér                            

3,5/5

Interpol - Our Love To Admire: Ekki diskur í likingu við fyrri tvo en virkilega góður samt sem áður. Rjóminn gaf þessum disk 4/5 og plötugagngrýnandi í mogganum gaf þeim einhvað álíka þannig ef að þið takið ekki mark á mér hlustið á þá.                          

4/5

J Dilla & Madlib(Jaylib) - Champion Sound: Eins og ég hef mikið álit á Dilla og fanst Libaration( Madlib og Talib Kweli) góð þá er þessi plata ekki allveg að gera sig. Taktarnir hjá Dilla eru flottir en ekki næginlega og þótt að stíll Madlib sé svipaður Talib þá er hann bara ekki eins góður. Það er ekkert samhengi á milli línanna og þetta passsar bara ekki saman. Ekki samt að segja að það sé ekki hægt að hlusta á diskinn ef að maður er að gera einhvað meira spennandi á meðann þannig að maður heyri bara einhvern gaur mumbla í takt og flott beat en heyrir ekki allveg hvað er verið að segja.

                                                                                           

2/5

Arcade Fire - Funeral: Ekki það að ég hafi eki heyrt þessa(og mikið af hinum plötunum) áður og átt hana á tölvunni en þetta er bara plata sem mig langaði að eiga. Þetta er nefninlega svo mikil snilld að það fer eginlega með mig! Diskurinn sem fjallar að miklu leiti um dauðan, en þó ekki á voðalega þunglindann hátt heldur meira sem pælingu og staðreind, skipar stórann sess hjá mörgum og það aðallega vegna þess að hann er snilld!                                

4,5/5

Arcade Fire - Neon Bible: Þessi diskur var ekki svona ,,instant hit" hjá mér eins og Funeral en maður lærir að elska hann. Hann er vikrilega góður og ef að þið hlustið vel þá ættuð þið  að geta heyrt nýasta singulinn af disknum á Reykjavík FM, No Cars Go.     

3,5/5

Beastie Boys - The Mix Up: Þar sem að þetta er aðeins instrumental diskur og engir textar er voða erfitt að halda sér við efnið ef að maður ætlar að einbeita sér að disknum en það held ég líka að sé meiningin með instrumental tónlist, maður á bara að hafa hana í bakgrunninum þegar að maður er að læra eða eitthvað og hann er góður til þess þótt að maður lýti nú alltaf upp á tölvuna einstöku sinnum og hlustar bara.                                                        

3/5

Elliott Smith - New Moon: Uppáhalds tónlista maðurinn minn er Elliott Smith, það er ekki búið að vera spurning seinustu 2 ár að uppáhalds tónlista maðurinn minn er Elliott Smith og það kemst enginn í nálægð við hann. Þessi diskur er góður, virkilega góður, ekki hans besti diskur, enda bara B-hliða diskur en góður. Lagið Either/Or sem átti víst að vera  titillag Either/or plötunnar er virkilega gott og sama segi ég um See You Later. Þetta er tvöfaldur diskur með 24 lögum og þau klikka ekki frekar en önnur lög eftir hann.                                               

3,5/5

Ýmisir - From Portland To Elliott: Var ég búinn að minnast á það að Elliott Smith er uppáhalds tónlista maðurinn minn? Þetta er diskur sem að ýmissir tónlistamenn og hljómsveitir frá heimabæ Elliott, Portland, spila lögin hans. Diskurinn byrjar vel með The Decemberists spilandi Clementine og það er frábært, mikið af þessum disk er mjög góður en svo inn á milli er einhvað sem að er bara fáránlegt. Kanski finnst mér það því að ég fýla ekki stefnurnar eða þekki ekki hljímsveitirnar en það eru svona 7 af 15 sem að ég lenni bara alls ekkert að hlusta á.

                                                                                               2,5/5

Talib Kweli & Hi Teck - Reflection Eternel: Einn uppáhalds maðurinn og maðurinn á bakið tjöldinn hjá mikið af besta hipp hoppi saman á einum disk, þvílík blanda. Diskurinn er mjög góður og byrjar á besta laginu Get Em Up. Samt ekkert diskur sem maður nennir að hlusta á aftur og aftur og ég efast að ég muni eitthvern tíman fá þvílíka löngun til að hlusta á hann, en hann er góður þegar að maður er byrjaður á því.

                       3/5 

Talib Kweli - Beautiful Struggle: Hef ekki heyrt marga diska með Talib en ég efast um að hinir séu jafn góðir og þessi þótt að ég voni það innilega. Þetta er einn af top 10 rapp diskum sem ég hef heyrt. Lögin Never Bin In Love Before og Broken Glass eru góð lög til að byrja.

4/5

 Common - Finding Forever: Ekki besti Common diskurinn. Ekki eins góður og Resurection eða Be en þó betri en Electric Sirkus(hef ekki heyrt Can I Borrow A Dollar). En það þýðir ekki að hann sé lélegur enda eru þetta nokkuð stórir skór til að fylla en hann ætti bara að geta gert betur.

2,5/5

Justice - Cross: Flottur diskur með electro danstónlist(ekki techno, það eru til fleirri tegundir af electó tónlist) Há punkturinn er án efa aðallagið þeirra D.A.N.C.E.! Það er bara of mikil snilld. Allur diskurinn er góður samt.

3,5/5

Dizzie Razzcal - Math+English: Hafði heyrt einhvað eitt lag með honum í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum og vinirnir á ísó höfuð sögt einhver góð orð um hann þegar ég var þar seinast þannig þegar að ég sá þennann á góðu verði skellti ég mér á hann og ég verð að segja....not my cup of tea. Tungumálið sem hann notar er bara of einfalt þótt að ég fýli þetta "það er kjánalegt að þykjast vera gangsta" skilaboð sem virðist koma fram reglulega.

2/5

The Roots - Home Grown! The Beginners Guide To Understanding The Roots: Langt nafn en það er þess virði að lesa það allt þegar að þú ert að leita þér að geisla diskum til þess að þú farir ekki framhjá honum(grænn með gulum stöfum). Þessi diskur er góður. Ég hef alltaf haft mikið álit á The Roots og það varð bara hærra með þessu. Virkielga góður diskur og öll lögin svo gott sem solid.

3,5/5

Oasis - Deffinetly Maby: Hafði í rauninni aldrei heyrt þennann disk sem er af mörgum talinn vera sögulegur. Hef sjálfur aldrei verið stór Oasis aðdáandi(nei ég var heldur ekki Blur aðdáandi) en þessi diskur er ekki alslæmur. Finn ennþá fyrir þessu "oasis er ekki fyrir mig" en ég ætla ekki að snúa baki við þessum disk og halda áfram að hlusta á hann.

3/5

The Beatles - Srg. Peppers Lonley Hearts Club Band: Las hjá einhverjum mbl bloggara um daginn að þessi diskur væri ekki ofarlega á listanum yfir bestu Bítla blöturnar. Þetta er eina heila platan sem ég hef heyrt með þeim(fyrir utan Love) og ég elska hana þannig mig dauðlangar að heyra hinar núna! Þessi plata er brjálæðislega góð og ég elska hana!

4,5/5 


Hjálp!

Hlynur var að hringja í mig, sagðist vera fullur, búin að klifra upp á klett og kemst ekki niður. Hann er í eyjum, getur ekki einhver hjálpað honum því að annars þarf hann að sofa upp á klettinum?!

Hlynur Þetta er náunginn. Ef þið sjáið hann veitið honum vinsamlegast hjálpar hönd. 

Einnig þektur undir nöfnunum: Nr. 2 og Bróðir hans Skúla. 


Fyrstu dagarnir í Montreal

Núna er líður að kvöldmatarleitinu á þriðja heila deginum í Montreal og ég hef ekkert að gera ætla ég að blogga.

    Undanfarnir dagar eru búnir að vera mjög skemmtilegir og ég er ekki frá því að hitinn sérna sé nokkuð verri en hann er á Spáni eða annarstaðar í suður Evrópu svona fyrir ykkur sem viljið bara sólarlönd. Það er búið að vera í kringum 30 gráður og hellingur af raka þannig að maður kemur allveg kóf sveittur heim á kvöldin og það tekur ísinn sem þú ert að borða nema 15 sekúntur að bráðna þannig að það er eins gott að drífa sig.  Auk þess er miðbærinn(þar sem hótelið mitt er staðsett) fullur af flottum veitingastöðum, klúbbum og verslunum þannig að þetta ætti bara að vera mekka fyrir alla unglinga.

    Mættum hingað á fimmtudagskvöld og á föstudag var bara labbað eitthvað og eytt pínu peningum en hingað til eru það einu almennilegu upphæðirnar sem hefur verið eytt nema þá kanski í veitingahús. Ég keypti mér eitt par af skóm, tvö pör af stuttbuxum og 2 geisladiska(From: Portland To: Elliott Smith þar sem að ýmissir listamenn frá Portland spila lög eftir Elliott Smith, m.a. The Decemerists og síðan keypti ég mér líka disk með J Dilla og Madlib).

    Á laugardag(gær) fórum við í svona rútu sem sýndi okkur borgina og það mátti hoppa af og skoða og svo hoppa bara upp í næstu rútu en þær komu á hálftíma fresti þannig að við nýttum okkur það og fórum að skoða Montreal Casino og síðan einhverja risastóra kirkju. Faðir minn er alveg alrangur maður til að fara með í Casino því að hann harð bannaði mér að spila poker og talaði bara um hvað allt fólkið þarna inni væri sorglegt á meðan að mig dauðlangaði að vera einn þerra!

    Í dag var síðan farið að fylgjast með Gay Pride göngunni sem var risa stór og mjög skemmtileg þótt að það hafi verið einn þarna sem var frekar ógeðslegur og núna alltaf þegar að ég hugsa um þessa göngu skýst ógirnileg mynd af honum upp í hugann. Síðan var bara labbað og ég ætlaði að kaupa mér mp3-spilara en þá var kvikindið bara búið. En hann á kanski að koma aftur á miðvikudag þannig að vonandi bjargast þetta. Veit reyndar um annann stað sem selur þetta en hann er bara langt í burtu og þar kostar hann 70 dollurum meira sem er um 4200 krónur.

    Ég var síðan svona úber sniðugur að vera með svona eininga converter í símanum mínum þar sem að ég bara inn einingu sem heitir ísl. krónur og kan. krónur og síðan um leið og þú slærð inn tölu breytir hann henni strax í krónur þannig að maður veit alltaf hvað hlutirnir kosta í krónum.

    Á ábyggilega eftir að blogga allaveganna einu sinni í viðbót áður en ég kem heim þannig "kepp posted"! 


So litle time so much to do

Svona hljómaði tiltillagið í eitthverri lélegri sitcom seríu með Olsen tvíburunum sem systir mín fylgdist með í Danmörk en það er einmitt svona sem undanfarnir dagar hafa verið. Maður hefur reynt að lifa eins venjulegu lífi og er hægt þessa níu daga því að maður vill ekki vera of lengi án þess en þegar að maður vill líka eyða sem mestum tíma með kærustunni sinni og fer síðan út á land yfir helgi og er að vinna alla daga er ekki mikill tími til að fylla upp í með því sem vantar eins og t.d. fótbolta.

En núna á miðvikudag er ég s.s. að fara til Kanada, 9 dögum eftri að ég kem frá Danmörku, með foreldrunum og verð þar í tvær vikur. Fanney er að fara til Skotlands með frænku sinni fimmdögum á eftir mér og verður þar í 3 vikur svo að það verða 3 vikur og 5 dagar þangað til að við sjáumst aftur.

En Kanada ferðin verður ábyggilega ekki leiðinleg. Foreldrar mínir eru búin að vera dugleg við að kynna sér hvað er í boði og þarna er m.a. neðanjarðar þorp, kapaksturs braut og á meðan að við erum þarna verður eitthvað uppistands festival þannig að það er aldrei að vita nema að maður sjái einhvað skemmtilegt þarna. 


Roskilde búin!

Núna sit ég í sófanum í herberginu hjá Stefan vini mínum hérna í kaupmannahöfn, næstum 20 tímar síðan ég skreið inn frá hátíð allra hátíða, Hróarskeldu.

Þrátt fyrir mikið regn fyrstu dagana(Hróarskeldu rigningarmetið var slegið á fimmtudeginum en sem betur fer hætti að rigna eftir það. En leðja var einhvað sem einkennti hátíðina. Mitt tjald hélst að messtu þurrt en það voru ekki mörg tjöld sem voru það. Því miður átti ég bara engin hrein eða þurr föt eftir svona einn og hálfann dag.

En eftir fjóra daga af upphitun var loksins kominn tími fyrir það að hátíðin fyrir alvöru og það gerði hún ekki vel! Það ringdi 27 millimetra þann dag og ég svaf yfir Arcade Fire tónleikana!!! En það skiptir ekk svo miklu máli því að allt var uppá við eftir það. Ég fór á Talib Kweli tónleika sama kvöld og Mestadon tónleika, þurfti reyndar að fórna The Killers, John Legend og Björk(langaði virkilega að fara á tvo seinustu) en maður verður bara að velja og hafna.

Fyrir utan pínu bunu á föstudeginum ringdi ekki meira eftir fimmtudaginn en þá var farið og hitt Gunnar Bjarna. Með honum var fylgst með hálfum The Sounds tónleikum, hálfum In Flames og hálfum My Chemical Romance tónleikum og það var ekkert varið í þá tvo seinustu. Eftir hálfann My Chemical Romace labbaði ég í burtu frá þeim, hitti Anton félaga minn og með honum var horft á Beaste Boys og Queens Of The Stonage og það var einhvað annað!  Klukkan 1 um kvöldið spiluðu síðan Nephew og þeir voru líka virkilega góðir . Held að Q.O.T.S.A. hafi verið flottustu tónleikar sem ég sá í ár en ég verð samt að viður kenna að ég var ekki eins duglegur við að fara á þá eins og ég var í fyrra. Kanski vegna þess að það var meira sem mig langaði að sjá í fyrra og svo var skipulagið mér mjög óhagstætt auk veðursins.

 Á laugardeginum var ekki mikið gert um daginn og fjörið byrjaði ekki fyrr en um miðnætti. Um daginn var horft á Clipse sem er Amerískt hip hop dúó sem var ekki allveg að njóta sín live en ég er samt nokkuð viss um að sér allveg ágætt ef að maður skilur hvað þeir eru að segja.  En eins og ég sagði þá byrjaði fjörið um miðnætti því að þá var farið á Red Hot Chillipeppers og Tiesto. Söngvarinn í Chillipeppers virkaði pínu þreittur en mér var allveg sama því að ég skemmti mér bara konunglega við að horfa á hljóðfæra leikarana og hversu flinkir þeir eru. Tiesto er hinsvegar svona Ibiza dj sem spilaði í fjóra tíma og hélt gjörsamlega brjálaðri stemmningu allann tímann, þótt að ég hafi bara verið þar þann síðsta.

Sunnudagurinn byrjaði snemma, eða það virkaði allaveganna snemma þótt að það hafi verið í kringum 13 því að það var enginn farinn að sofa fyrr en eftir klukkan 5 nóttina áður en þetta þurfti maður að gera því að leiðin lá á Suspekt en á undan þeim spilaði svona lítil sinfoníu hljómsveit sem spilaði Drum'n'Bass tónlist og það var svalt! En það voru suspekt líka! Suspekt er danskt gangster rap tríó sem hafði bara hið danska all star lið í rappi uppi á sviði með sér. Þarna voru LOC, UFO, TueTrack og eitthver síðhærður gæji sem ég þekkti ekki. 

Á sunnudeginum var orðið svo þurt að öll leðjan var að mestu þornuð og ryk kom í staðinn en þá var tekið á Appelsínugula sviðið þar sem horft var á Artic Monkeys og ég var ábyggilega sá eini sem var með stemmingu í mér því að allir voru orðnir pínu þreyttir. Seinna um kvöldið eða í kringum 8 var horft á Muse með Kristian vini mínum og þeir voru virkilega góðir. 

En eftir það var kominn tími til að fara heim. Tónlistin var að verða búin og hvorugur okkar nennti að eyða annari nótt í tjöldunum en satt best að segja þá hefði ég ekki getað hugsað mér betri endi á góðri Hróarskeldu. 

 


Afsakið hlé(NBA Blogg)

Fanst þessi titill við hæfi miðað við hvað það er langt síðan ég bloggaði.
Það fyrsta sem mér datt í hug að blogga um var hvort að það sé ekki búið að sýna Boston Legal þáttinn sem ég er að horfa á áður eða hvað? Samt sem áður ekki efni sem maður bloggar um svooo...
Ég fékk vinnu í Max, bara út Júni en ég verð hvort eð er helminginn af restinni í útlöndum þannig að það tekur eginlega ekki að því að vera að finna sér vinnu fyrir þá fáu daga sem ég verð á landinu í júlí og ágúst þannig að ég er bara mjög sáttur og ætla að njóta mín!
Úrslitakeppnin í NBA hefur eginlega verið eins skemmtileg og hún hefur nokkurntíman verið og þar sem ég er ekki með sýn verð ég að lát mér nægja að fylgjast með henni annað hvort daginn eftir eða þá lýsinguna á nba.com. Spurs og Caveliers s.s. komnir í úrslit. Sáttur með þessi tvö, spurs er bara ótrúlega fagmanlegt og heilsteypt lið á meðan að Caveliers er meira fyrir frásögnina daginn eftir þar sem að það er örugt að Lebron gerir allaveganna 1-2 rosa tilþrif. Einhver nýliði skoraði 31 stig í leiknum í gær og svo gott sem vann leikinn fyrir cleavland, einhver Daniel Gibson sem ég hafði satt best að segja aldrei heyrt um áður. Hef einnig svo gott sem aldrei heyrt um jafn skemmtilega "rimmu" og Clevland-Detroit.
Það var svo annað mál með Spurs, það var aldrei spurning að þeir myndu komast áfram þegar að þeir fóru að sýna fram á að þeir voru betri en Suns(sem var snemma).
Hefði svo sem ekkert haft neitt á móti því að mínir menn í Orlando hefðu náð lengra en til að vera alveg hreinskilinn áttu þeir ekki betra skilið, ekki með næginlega góðann mannskap og þurfa að standa sig betur í vörninni inn í teignum.
Það eru síðan þrír sem koma til greina sem MVP úrslitakeppninnar í mínum augum og það eru LeBron James, Tim Dunkan og Manu Ginobli.
Hef ekki meira að segja núna.

"Allaveganna, alltaf gaman þegar að einhver rakar á sér höfuðið fullur"

Sit heima á laugardagskvöldi, ný búinn að taka til í herberginu mínu, síminn minn á silent og ég nýt lífsins til hiðs ýtrasta! Reyndar dauðþreittur en ég er að hugsa um að horfa bara á góðu hliðarnar af því og fara að sofa...eða eitthvað.
Annars er veðrið búið að vera svo gott undanfarna daga að þeim hefur bara verið eytt á körfuboltavellinum sem er nákvæmlega eins og þeim á að vera eytt. Hef satt best aldrei skilið almennilega hvernig sumir segjast ekki nenna í fótbolta og körfubolta þegar að veðrið er svona gott og virðast frekar bara vilja hanga inni(þ.e. fyrir utan mig núna).
Fór í grillveislu hjá Sveppa í gær í tilefni afmælisins hans sem er einmitt í dag(til hamingju) og skemmti mér konunglega og held að ég sé ekkert að ýkja þegar að ég segist hafa komið með besta kjötið og notið mín lang best. Það var líka ógeðslega fyndið að það var eitthver stelpa þarna sem drakk heila flösku af freyðivíni ein og borðaði ekki neitt á meðan að allir hinir borðuðu yfir sig og drukku kók. Hún var frekar kjánaleg sú. Fór reyndar þaðan klukkan hálf ellefu (þótt að ég hafi reyndar heyrt í dag að gamanið hafi staðið til klukkan 2 eða eitthvað) og fór til Sindra þar sem að það stendur uppúr að Hlynur er víst orðinn nasisti eftir að Ingibjörg snéri honum.
Allaveganna, alltaf gaman þegar að einhver rakar á sér höfuðið þegar að sá hinn sami er fullur og ennþá fyndnara þegar að sá sem rakar er líka fullur.

Sáttur hingað til, held að ég ætli bara að halda því áfram, eða þangað til næstu helgi.

Var að kíkja á innuna mína til að sjá hvort að ég væri búinn að fá eitthverjar einkunnir og það kom bara í ljós að ég er búinn að fá þrjár áttur og eina fimmu sem að ég er bara nokkuð sáttur með! Allt yfir 7 er gott og þessi fimma var í spænsku og allveg mér að kenna og ég ætla ekkert að kvarta yfir henni. nú er það Bara að læra fyrir íslensku prófið í dag og á morgun og svo eyða næstu helgi, sem yrði annars besta helgi allra tíma, í að læra fyrir sálfræði og félagsfræði.
Já en snúum okkur að helginni sem er að fara að renna upp! Ég er nefninlega nokkuð viss um að ef að það væri ekki fyrir þessi blessuðu próf þá myndi hún vera besta helgi allra tíma. Á þessari helgi eru nefninlega kosningar, Eurovision, seinasta umferð enskudeildarinnar og fyrsta umferð Landsbanka deildarinnar! Þetta er held ég bara uppskrift af hinni fullkomnu helgi en því miður þarf mygla að læðast í þennan rétt.
Síðan er ég búinn að áhveða að næsta blogg sem ég pósta verður svona hvað mér finnst um diskana sem ég er ný búinn að ná mér í og er að hlusta á.

Wariors inn, Man Utd út

Það er nú alltaf gaman að fylgjast með íþróttum en það er í viku eins og þessari þegar að það verður virkilega súrsætt. Í þessari viku eru búinir að vera nokkrir virkilega sætir sigrar og nokkur virkilega súr töp en þrátt fyrir þau þá er það svona dót sem fær mig til að virkilega elska að fylgjast með þessu öllu saman.
 Fyrir viku datt uppáhalds NBA liðið mitt, Orlando Magic, út úrslita keppninni eftir að hafa tapað fjórum leikjum í röð á móti Pistons(sem er besta liðið í austurdeildinni). Þetta var sárt en sangjarnt þannig að ég get ekki kvartað.
Síðan í nótt unnu Golden State Worriors sinn fjórða sigur á Dalla Mavericks og þar með slógu þá úr keppni. Fyrir þá sem ekki vita þá eru Worriors eitt af lélegusu liðum í deildinni og komus í úrslita keppnina í fyrsta skipti í þrettán ár en á meðan þá voru Mavericks með besta vinnings hlutfall nokkura liða síðan Bulls árið 93 eða eitthvað.
Það er nú líka meira spennandi að gerast í NBA núna en ekkert sem ég nenni að lengja bloggið með.
Í ensku deildinni eru síðan bara tvær umferðir eftir og hún gæti ekki verið meira spennandi. United á eftir leiki á móti Man City og svo Chelsea, en það lið er ekki nema 5 stigum á eftir þeim og er ennþá í baráttunni.
Chelsea á hinsvegar eftir leiki við Arsenal og Man Utd og verður að vinna báða til að getað unnið.
En í meistaradeildinni, þvert á hvað flestir höfðu spáð, duttu akkúrat þessi tvö lið út! Á móti Liverpool og AC Milan.
S.s. leikurinn um þriðja sætið verðu væntanlega mun skemmtilegri heldur en úrslita leikurinn.
Veit að þetta var kanski ekki hið skemmtilegasta blogg en það verður að duga því að þetta eru akkúrat hlutirnir sem mig langar að tala um núna.

Lærisleysi

Núna, þegar að allir eru djúpt sokknir í prófalestur tilkynni ég stoltur: Ég er ekki búinn að gera neitt af viti í dag! Ég er bara búinn að hafa það náðugt, ljúft og gott
Fer í fyrsta prófið á mánudaginn og ætla bara að taka það rólega í dag og á morgun og svo byrja að læra á fimmtudag. Ég verð þó að passa að lenda ekki í algjöru kæruleisi, er ekki einu sinni búinn að finna mér sumar vinnu og hef eginlega bara enga hugmynd hvar ég ætti að byrja að leita.
Er annars bara nokkuð sáttur við próftöfluna mína. Fer í það fyrsta á mánudaginn og svo næsta á föstudaginn eftir það og svo mánudaginn og þriðjudaginn eftir þann föstudag.
Fórum annars út að borða nokkur í gær. Skelltum okkur á Eldsmiðjuna og gæddum okkur á dýrindis pítsum og ég held að ég geti talað fyrir hönd allra sem voru þarna að þetta hafi bara verið fínt, þrátt fyirr nokkur minniháttar mistök með pönntunina. Reyndar mætti ég þangað ný skriðinn úr matarboði þar sem ég hafði borðað slatta þannig að ég vallt eginlega út frekar en nokkuð annað. Eftir það var farið að horfa á Mulan Ruge(eða eitthvað) og hún kom mér bara nokkuð á óvart og skemmti mér konunglega.
En núna er ég geðveikt upptekinn við hlusta á Rage Agenst The Machine og fyllast af reiði þannig að við heyrumst bara.
P.S. Keypti mér geðveikann síma í gær og hann er geðveikur!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband